Einkunnir.
Ég er ekki beint þessi hógværa týpa - eins og flest ykkar vita. Hahaha. Þannig að ég ætla aðeins að monta mig hér. Ég var að fá einkunnir fyrir haustönnina, þar sem maður fer ekki í próf hérna úti. 11 er eins og 10 á Íslandi, 10 er ca 9 og svo framvegis.
Danska.
Lestur: 10
Stafsetning: 11
Skrifleg: 11
Skipulag: 8 (allir fengu 8 afþví að kennarinn vissi ekki eftir hverju hún ætti að fara.)
Munnleg: 10
Stærðfræði.
Munnleg: 8
Orðadæmi: 8
Skyndipróf: 8
Enska.
Skrifleg: 11
Munnleg: 10
Eðlis- og efnafræði: 8
Líffræði: 9+
Franska.
Skrifleg: 8+
Munnleg: 9+
Landafræði: 11
Saga: 8 (allir fengu 8 afþví við erum ekkert búin að vera í sögu)
Samfélagsfræði: 10
Meðaltal: 9.5
Ég er hæst í bekknum, og já, ég er alveg að springa úr stolti.
- Sunna ótrúlega ekki-hógværa kveður :)
Sjáið bara hvað ég er glöð :)
Það eru bara 27 dagar í jól og ég er farin að hlakka alveg geðsjúklega mikið til. Ég er ennþá svo mikið jólabarn .. eða nei ekkert ennþá - ég verð það alltaf!
Við vorum að baka piparkökur áðan og hlusta á jólatónlist .. best í heimi!
Ég vil að fólkið sem ég gef jólagjafir skrifi hvað þeim langar í, og þá skal ég líka skrifa óskalistann minn.
1. Eitthvað heimagert. Málverk eða ljósmynd eða eitthvað álíka.
2. Föt. Sunnuleg-föt. Svona skrýtin og sérstök föt sem bara öskra SUNNNAAAAA þegar maður sér þau.
3. Rauðir skór. Eins og í galdrakarlinn frá Oz :)
4. Hátalara til að tengja við tölvuna.
5. Nýjan mascara og nýtt meik.
6. Stafræna myndavél.
7. Kúl sokka.
- Já, that's about it.
Ég hef ekkert áhugavert að segja - ég er eiginlega að eyðileggja fyrir sjálfri mér að blogga þetta hérna, því það voru svo mörg comment í hinu. Já, mörg á minn mælikvarða og það er nú ekkert voðalega mörg. En mig langaði bara svo rosalega að blogga, þannig að ..
Og hey já, ritgerðin sem ég var að tala um um daginn .. ég fékk 11 fyrir hana :D Sem er eins og 10 á íslandi. Ótrúlega ánægð.
1 question.
1 chance.
1 answer.
100% honest.
That's all you get.
You get to ask me 1 question,
any one question,
no matter how crazy it is.
ANY 1 question!!
Conditions: I won't tell ANYONE what you asked me and Ill answer it...
Sunna kveður, ógeðslega óánægð með leiðilegasta blogg sem hún hefur skrifað :||
I'm alive.
Vá, hvað lífið er langbest!
Ég er svo ótrúlega ánægð með að vera flutt til Danmerkur. Það er það besta sem hefur gerst fyrir mig. Það er einhvernveginn bara allt að ganga upp. Oh, vonandi endalaus hamingja.
Af mér er allt æðislegt að frétta. Gisti hjá Særós alla helgina. Það er eitthvað sérstakt við að vera heima hjá Særós. Það er einhver annar heimur .. heimur sem ég vissi ekki einu sinni að væri til. Æ, ég á voðalega erfitt með að lýsa þessu, maður þarf eiginlega að þekkja Særós og mömmu hennar. Þær eru alveg frábærar. Rosalega pólítískar og miklir hippar. Þær voru að fræða mig um Kárahnjúkavirkjunina og margt fleira.
Málið er að þegar ég flutti frá Íslandi, þá var ég allt önnur manneskja en ég er í dag. Þegar ég var á Íslandi þá var útlitið allt. Ég var FM hnakki af Guðs náð og gelgja djöfulsins. Ef ég myndi kynnast einhverjum sem væri eins og ég var þá, þá myndi ég pottþétt ekki fíla manneskjuna. En já semsagt, þá var ég ekkert að pæla í neinu öðru en hvernig ég væri máluð og hvað ég væri með of lítil brjóst og feit læri. Kárahnjúkavirkjunin, pff .. Það var bara eitthvað vatn sem átti að nota í einhverja helvítis vitleysu.
"Þúst, djíses kræst .. eigum við ekki nóg af vatni, eða? Ó MÆ GOT, djöss fíbbl marr. Úlala, heitur gaur."
Mér finnst skrítið að foreldrar mínir hafi ekki lokað mig inni eða gefið mig í jólagjöf til Kazakstan.
En heima hjá Særós og Rósu vorum við að tala um hluti sem ég hef venjulega ekki verið að ræða um, en hef samt mikinn áhuga á. Á meðan vorum við að hlusta á rosalega arty tónlist (Fink held ég að hljómsveitin heiti), vorum með kveikt á kertum og reykelsum og svo lágum við allar saman í rúminu hennar Særósar - Særós, Sara, Rósa og ég og töluðum alveg heillengi. Það var bara æðislegt. Geðveikt. Nýtt. Spennandi. Ógleymanlegt.
Ég er búin að þroskast í allt aðra átt en allir vinir mínir á Íslandi, ég finn það alveg. Þess vegna finnst mér ég oft rosalega utanveltu, og eins og enginn skilji mig, en það er allt annað mál.
En ég vona að þið hafið haft smá gaman að þessu röfli. Ég er komin með tölvuna aftur, þannig að nú koma bloggin alveg í röðum!
Hittumst heil,
Sunna skápshippi - loksins komin útúr skápnum! HELL YEAAH
Orð helgarinnar: Klerkur, gyðingur, svertingi í hjólastól, sultugæi, sultugyðingur, gaur, skaufi, gamall skaufi, sultuskaufi, kárahnjúkavirkjun, brunch, pönnukökur, wraaar (kattahljóð), alþjóðavæðing og hahahahah (hlátur).
.. farðu í friði vinur minn kær, aldrei ég mun þér gleyma <3
Hvenćr er rétti tíminn?

Ég er búin að vera mjög leið núna síðustu daga. Búin að vera mjög reið og gráta mikið. Ég er búin að vera reið út í margt, en sérstaklega út í Guð og hvað lífið getur verið ótrúlega ósanngjarnt. Ástæðan fyrir þessari reiði og sorg er að sjálfsögðu missirinn af góðum félaga á Skagaströnd. Þetta er rosalega leiðinlegt allt, en það þýðir ekki að vera svona leið alltaf .. maður á frekar að hugsa um allt það góða og vera bjartsýnn. Hann hefur það betra þarna uppi. Ég er alveg viss um það.
Þótt að ég viti að maður á að vera bjartsýnn og glaður, þótt að eitthvað svona hræðilegt gerist, þá gríp ég sjálfa mig oft í að bæla inni hlátur og ekki brosa jafn innilega og mig langar til. Ég fæ hálfpartinn samviskubit yfir að vera glöð. Hvenær er rétti tíminn til að byrja að hlæja aftur?
Það er örugglega ekkert eitt svar við þessu .. en ég er voðalega ringluð eitthvað. Það er ekki það að ég sé ekki leið lengur, það er alls ekki það. Ég veit bara að ef ég sýni hvað ég er leið, að þá hef ég áhrif á aðra í bekknum og mér finnst það ósanngjarnt. Ég er bara þessa glaða týpa, og ég þoli ekki að vera leið .. eða .. sýna að ég sé leið.
En nú eru jólin að nálgast og ég er búin að ákveða að ég ætla að gefa heimagerðar, ódýrar gjafir sem maður man eftir. Ég er búin að gera eina gjöf - hún er handa Tinnu og Davíð :) Ég þarf að fara að gera fleiri. Það kom í ljós að ég hef þetta "kreatíva" (vá, hvað ég hljóma veraldarvön og snobbuð. ég er hvorugt, man bara ekki íslenska orðið!) gen, sem ég hef alltaf fullyrt að ég hafi ekki. Gaman að því.
Skilaði ritgerð í vikunni og fæ líklegast einkunn á morgun. Við áttum að gefa okkar eigin ritgerð einkunn. Það verður gaman að sjá hvort að ég og kennarinn séum sammála. Ég er rosalega ánægð með þessa ritgerð, þetta er með þeim betri sem ég hef skrifað. Sem sagt, vonum að kennaranum finnist það líka.
Mér finnst gaman að segja frá því að meðaltalseinkunnin mín er 9.5. Ég er rosalega sátt við það, þar sem ég hef ekki verið að standa mig nógu vel í stærðfræðinni, en ég ætla að taka mig á á því sviði.
Á morgun er ég að fara á fund með René Skau Björnsson. (Nei, hann er ekki íslenskur, hann er ekki af íslenskum ættum, hann heitir þetta bara.) Hann er Social Demokrati í Folketinget sem er eins og Alþingi. Ég og Danielle erum að gera verkefni um Social Demokraterne og það gengur mjög vel. Mér finnst ótrúlega spennandi að fá að tala við René í eigin persónu og spyrja um ýmislegt. Það verður örugglega mjög gaman.
En ég ætla að fara að koma mér í rúmið, og reyna að finna mér einhverja bók að lesa. Byrjaði í gær á nýjustu bók Dan Brown "Tankados Kode" heitir hún á dönsku, og ég er búin með hana. Mjög góð bók, mæli með henni. Önnur bók sem ég mæli með er "Flugdrekahlauparinn" eftir Khaled Hosseini. Ef þú grætur ekki yfir þessari bók, þá hlýturðu að vera tilfinningalaus. Frábær bók!
Ég er farin að lúlla. Góða nótt.
- Sunna.

C'mon baby light my fire .. please.
Only the good die young ..
Ég er ekki búin að fatta þetta ennþá. Guðmundur Ingi lést 8.nóvember úr hvítblæði.
Ég vona að þú lýsir upp fleiri herbergi í himnaríki, bara með því að koma inn í það - eins og þú gerðir hérna á jörðinni. Ég gleymi aldrei brosinu þínu, eða þér.
Þar sem englarnir syngja sefur þú.
Sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú.
Að ljósið bjarta skæra.
Veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós.
Lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós.
Tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól.
Lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta.
Vekja hann með sól að morgni
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál.
Svala líknarhönd.
Og slökk þú hjartans harmabál.
Slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær.
Faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær.
Aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
Sofðu vel, elsku Gummi minn.
.. og ekki þennan tón við mig.
