Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Könnun

Hvenær ætti maður að fá kosningarétt?

Leit

Afsakid hle!

21. september 2007 klukkan 07:53

Föst a Grænlandi!

06. september 2007 klukkan 22:47
Fluginu aflýst vegna vedurs! Vonandi leyfa vedurgudirnir okkur ad fljuga heim a morgun eftir tveggja daga dvol a hoteli i Narsarsuaq. Spain er tho ekkert alltof god, en vid vonum thad besta! Vinkid thegar eg flyg yfir Island um 4 leytid a morgun :)

Bestu kvedjur og hellingur af ast til ibua Holmkærvej 21!
- Sunna.

Grænlandsferdin langthrada.

28. ágúst 2007 klukkan 16:10
Jæja - loksins gatum vid sett tolvuna i samband inni snjohusinu, eftir langa leit ad rafmagnsstaur i snjokomunni. A leidinni i skolann slatrudum vid seli til ad taka med okkur i nesti, thar sem ad hvalkjotid var buid. Eftir ad vid hofdum slatrad selinum og hent honum upp a hundasledann, tha missti Lili spjotid sitt og thad lenti i einum sledahundinum. Tha thurfti eg ad fara og binda bandid um mittid a mer og hlaupa med sledann i 1 meters snjo. Loksins komum vid ad skolanum, og tha hengdum vid selskinsgallana okkar upp yfir eldinum, medan vid skrifudum reikningsdæmi i snjoinn med spytum.

Thetta hafdi eg sjalf imyndad mer adur en eg kynntist grænlendingunum og adur en thessi Grænlandsferd kom til umrædu. Nuna thegar eg er komin hingad og buin ad sja næststærsta bæ Grænlands, buin ad kynnast grænlenskum unglingum, bua a grænlensku heimili og borda grænlenskan mat - tha se eg hversu favis eg var! Mer var brugdid thegar eg kom hingad. Eg var med otrulegar ranghugmyndir um thetta land og thennan bæ.

Shock nr. 1 - Thegar vid komum til Qaqortoq skein solin og eg var bara a bolnum uti!
Eg helt - ad thad væri alltaf iskalt herna.

Shock nr. 2 - Thad eru engar myflugur herna.
Eg helt - ad thad væri olift herna fyrir myflugum. Keypti muggufælu, kælandi sprey a bit, muggunet og hatt!

Shock nr. 3 - Allt er a donsku. Allar auglysingar, oll plakot - allt!
Eg helt - ad thad væri ekkert a donsku, og ad eg myndi ekki skilja neitt.

Shock nr. 4 - Allir keyra i leigubil um allt!
Eg helt - ad folk hefdi ekki efni a thvi. En thad er skiljanlegt thvi ad thad er odyrara ad keyra i taxa herna en stræto heima i Dk, haha..

Shock nr. 5 - ALLIR ERU MED STRIPUR I HARINU!!! Lika 7 ara krakkar, stundum yngri.
Eg helt - ekkert um thad. Var voda litid buin ad pæla i thvi.

Shock nr. 6 - Thad er endalaust mikid lif i thessum litla bæ.
Thad er sama hvad klukkan er thegar thu ferd ut, thu rekst alltaf a helling af folki, og serstaklega unglinga. Allir eru otrulega vinalegir og heilsa manni alltaf.
Eg helt - ad thetta væri gjorsamlega dautt!

Shock nr. 7 - Grænlenska er ekkert thad erfid. Eg er buin ad læra alveg helling, og skil margt.
Eg helt - ad thad væri omogulegt ad læra thetta mal.

Jaaaa.... Thannig ad eg er buin ad læra alveg helling og gera helling af skemmtilegum og spennandi hlutum. Eins og til dæmis.

+ Smakka Innlandsisinn!
+
Fara i bad i vatni uppa fjalli rett hja Innlandsisnum.
+ Vera i budum i 3 daga
+ Halda a litla straknum hennar Karla, sem er stelpan sem eg by hja, heim af spitalanum.
+ Smakka hvalkjot - thad var alveg agætt. Svolitid likt hrossakjoti.
+ Fara i gongutur og sja fjoll og anda ad mer hreina loftinu.
+ Fara i gongutur og sja fjoll og anda ad mer hreina loftinu - aftur.
+ Sja felagsmidstodina herna, sem er otrulega flott. Er lika ad fara a diskotek thar a midvikudaginn!
+ Kynnast grænlenska bekknum miklu betur.
+ Kaupa gjafir handa skemmtilegum manneskjum i Danmorku.
+ Sigla i 6 tima i litlum bati. Um bord var madur sem spiladi a skeidar og munnhorpu fyrir okkur.
+ Smakka "bjorkoku" sem er otruuuulega god!
+ Fara i Tourista ferd um bæinn med guide.
+ Fara i bad i iskaldri á.

Sidan thad sem var ekki jafn spennandi og skemmtilegt...

- Sofa med 5 manneskjum i einu hjonarumi!
- Fara i gongutur og sja ymislegt fallegt - aftur.
- Fara i annan gongutur og sja ymislegt fallegt - enn og aftur.
- Og aftur... Og aftur. Thad var gaman ad sja thetta i fyrstu 5 skiptin - en svo vard thad leidinlegt, vegna thess ad thetta var alltaf thad sama sem vid saum.
- Verda rennandi blaut aftur og aftur utaf ostjornanlegri vedrattu her i Qaqortoq.
- Smakka hvalasupu - thad var ogedslegt!
- Skera mig a puttunum a beittum steinum!
- Detta nidur 76 brekkur med 100km hrada a klst.
- Kasta steini i hausinn a Mohammed og hann fekk gat i hausinn! :(


En nu verd eg ad fara, thvi rafmagnid i bænum er ad verda buid. Hafid thad otrulega gott.

Takoss!

Sunna,  Kalallit Nunaat.


ps. mamma, pabbi, Huginn & Audur - EG SAKNA YKKAR!!!!!!!!

Tomorrow, tomorrow, i love you tomorrow, you're always a day away!

19. ágúst 2007 klukkan 16:02
Ég er að fara til Grænlands á morgun.
Takk fyrir takk. Ég get ekki beðið.

Fór í fyrsta leiklistartímann minn - það var æðislega gaman! Ég er elst og sú eina sem hefur aldrei verið í leiklist áður. Veeeery exciting. Við áttum öll að vera með kynningu um okkur sjálf, og mín gekk mjög vel. Hinir krakkarnir voru rosalega góðir.. Öllsömul!

Síðan um daginn sendi ég umsókn í svona "talentcamp" í ensku og samfélagsfræði. 22 í allri Danmörku komust inn - OG ÉG KOMST INN! :D



En heyrðu - ekkert blogg fyrr en eftir langan tíma. Nema ég komist eitthvað í tölvu í Gænlandi! Hafiði það æðislegt!

Sunnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnna.

Damien Rice er yndislegur.

13. ágúst 2007 klukkan 22:44
Já, sæl veriði enn á ný.
Ég er bara búin að vera að njóta danska sumarsins uppá síðkastið, og hef ekki haft neinn tíma til að blogga. En nú fer skólinn að byrja aftur, og það verður púl. Þá á ég líklega eftir að eyða þó nokkrum tíma fyrir framan tölvuna, og hver veit nema ég skelli í blogg svolítið oftar en vani hefur verið á. Já, maður veit aldrei. Ég geri samt ekki þau mistök eina ferðina enn að lofa neinu.

Ég var aldrei búin að segja frá Íslandsferðinni, enda kannski heldur ekkert neitt voðalega mikið að segja um það mál. Þetta var frábær ferð í alla staði. Það var alveg ótrúlega erfitt að fara þaðan, en ég get þó látið mig hlakka til að koma þangað aftur :)

Ég hitti ekki alla sem mig langaði að hitta, og mér finnst það ógeðslega leiðinlegt, og ég vil bara biðjast afsökunar ef ég hitti ekki alla sem höfðu áhuga á að hitta mig! Geri það næst :) Lofa. En ég hitti líka manneskjur sem ég hafði alls ekki reiknað með að hitta. Má þar nefna Önnu Dúnu Rúnarsdóttir sem ég rakst á, fyrir algjöra tilviljun, í esso sjoppu í Reykjavík! Ég fór síðan heim til hennar um kvöldið og við kjöftuðum út í eitt. Það var ótrúlega gaman. Rifjuðum upp ýmislegt skemmtilegt síðan við vorum litlar og það var mikið hlegið!

Síðan var náttúrlega tískusýningin! Set hérna ótrúlega töff mynd af mér á runwayinu, sem frænka Særósar, hún Sigrún tók.

Þetta var sjúúúúklega gaman!

Ég kom til Danmerkur, og þá voru Jóna Lind og co. komin. Það var ótrúlega gaman að hafa þau í heimsókn. Við styrktum pizzeríuna í Trige allduglega, enda var hann Maríó pizzakarl farinn að þekkja okkur með nafni eftir 2 vikur með endalausum "familie pizza" og þreföldum skömmtum af frönskum, og 7 lítra af gosi með. Ég er líka með ótrúlegt ógeð af skyndibita núna, og það er líka bara fínt.

Ég endaði stutt en ánægjulegt samband okkar Caspers fljótlega eftir heimkomuna, vegna vandamála minna yndislegu. Eirðarleysi, endalaus leit að einhverju sem ég veit ekki hvað er, grasið er grænna hinummegin-sjúkdómurinn og svona skemmtilegheit. Því var ekki vel tekið, en við lifðum þetta af. Mér líður allavega vel - honum líður ágætlega.

Nú er skólinn að byrja aftur hjá mér. Ekki á morgun heldur hinn! Þetta sumarfrí er búið að vera ótrúlega fljótt að líða. Ég fer í skólann í næstum viku og svo er ég að fara til Grænlands! Ég er svo að deyja, ég hlakka svo geðveikt til. Þetta verður best. Þá kemur ferðasagan sko! Afþví þetta er svo nýtt og öðruvísi. Þið sem lesið bloggið mitt vitið alveg hvernig Ísland er - ég þarf ekkert að lýsa því :)

Annars tók ég herbergið mitt í gegn áðan. Þreif allt gjörsamlega í hel. Það er allt svo speedshiny að ég þori varla að hreyfa mig. Síðan angar allt af ajax - sem er náttúrlega yndislegt. Ég þarf bara að klára þetta alveg. Ég þoli bara ekki þessa litlu hrúgu sem er alltaf eftir hjá mér. Draslið sem ég veit ekkert hvað ég á að gera við. Alleg ógisslega pirrandi, skeluru..

En hey! Ég er að gleyma því besta!! ÉG ER AÐ FARA AÐ TAKA UPP TVÖ NÝ LÖG! Hann Gunnar ætlar að hjálpa mér með það. Þannig að ég er að fara á fullt að búa mér til músik-myspace og svona. Kannski að klára textann á öðru laginu fyrst, haha. Annað lagið er svona tregafullt og mellow píanólag en hitt er svona jam-blues lag. Þetta er svo spennandi. I will keep you tuned!

Heyrðu elskulega fólk - vonandi líður ykkur ótrúlega vel!
Hellings mikil ást og sakn,
ykkar lsg.


Ég og Emma erum skapandi!


Ps. nýjar myndir :)

Ég er komin heim!

24. júlí 2007 klukkan 02:20





ég hata að segja bless.

Klakinn..

20. júlí 2007 klukkan 13:50
Langaði bara að láta ykkur vita að ég er lifandi.

Mætt á klakann eftir langa bið, með höfuðið fullt af hugmyndum og væntingum til Íslands, og ég skal segja ykkur það að landið lifir alveg upp til þeirra væntinga. Ég held ég hafi haft rosalega gott af því að komast hingað og rækta gömul vináttu og fjölskyldubönd, og bæta mína hálfbjöguðu íslensku.

Veðrið hérna er búið að vera yndislegt. Ótrúlega hlýtt og sólin búin að sýna sig óspart. Mér finnst reyndar alls ekki eins heitt og sumum.. En ég er náttúrlega líka svo ótrúlega góðu vön! Núna er voðalega milt og gott veður. Ekki kalt og ekki heitt. Það er ágætt.

Ég trúi varla að ég sé búin að vera hérna í viku. Þetta er búið að líða svo ótrúlega hratt. Ég hlakka rosalega til að komast til Danmerkur aftur, en það er samt líka eitthvað í mér sem vill bara vera hérna. Ég elska íslendinga. Það sem ég elska mest við íslendinga er þessi rosalega snertiþörf! Alltaf þegar við hittumst þá kyssumst við á kinnina og knúsumst. Mér finnst það svo æðislegt. Meiraðsegja fólk sem ég kannast bara smá við kyssir mig á kinnina og kallar mig "sæta"! Mér finnst það yndislegt.

Ég er ættuð úr rosalega kærlegri fjölskyldu. Allir alltaf að faðmast og hrósa hvorum öðrum. Síðan kem ég til Danmerkur og allir þar rosalega hátíðlegir, takandi í höndina á manni og ótrúlega vandræðalegir þegar maður hrósar þeim. Það var mikil breyting. En á móti kemur að danir eru miklu opnari fyrir nýjum hlutum og alls ekki fordómagjarnir. Maður þarf líka bara að kynnast þeim vel og kenna þeim að knúsa - þá er þetta allt í fína :)

Bæði lönd hafa sína kosti og galla. Og þegar bæði lönd hafa svona rosalega mikið af kostum, þá festist maður stundum á milli þeirra. Manni langar að vera á báðum stöðum, og líður oft rosalega undarlega yfir því. Ég held maður verði að prófa þetta - að eiga heimili í tveimur löndum - til að vita hvað ég er að tala um. Þetta er erfiðara en maður heldur!

Ég ætla bara að njóta tímans sem ég er hérna og hafa gaman. Ég ætla að borða það sem mig langar í, kaupa mér það sem mig langar í, gera það sem mig langar til og fara svo ótrúlega ánægð og þreytt heim. That's life....

Vonandi líður ykkur öllum vel,
Sunna in Iceland.

Ps. Er einhver að fara á skagaströnd á sunnudaginn? Mig bráðvantar far! Látið mig vita!


Hæ heimur

12. júlí 2007 klukkan 17:36
Elsku fallega fólk, ég veit þið trúið því ekki, en ég er að leggja af stað í kvöld. Sjáumst á morgun, elskurnar!

Lífið er dásamlegt

11. júlí 2007 klukkan 19:57
2 dagar!

Lífið er fallegt!

09. júlí 2007 klukkan 17:50
4 dagar.